Samhengisrek

e. context drift

Einnig kallað: context drift, samhengistap

Þegar mállíkan eða erindreki hættir smám saman að fylgja fyrri fyrirmælum, takmörkunum eða markmiði í löngu samtali eða vinnulotu.

Samhengisrek er það þegar mállíkan eða erindreki hættir smám saman að fylgja því sem sagt var fyrr í löngu samtali eða vinnulotu. Fyrri fyrirmæli, takmarkanir eða staðreyndir hætta að hafa áhrif og svörin færast frá upphaflega markmiðinu.

Orsakir eru m.a. að mikilvægar upplýsingar týnast í löngu samhengi, að samhenginu hefur verið þjappað saman eða að nýrri skilaboð vega þyngra en þau eldri. Algeng ráð eru að byrja nýtt samtal, endurtaka meginreglurnar eða geyma þær í skrá sem verkfærið les aftur.

Dæmi úr starfi

Blaðamaður biður í upphafi um að allar tilvitnanir séu orðréttar. Eftir langt samtal tekur hann eftir að gervigreindin er farin að umorða þær, svo hann byrjar nýtt samtal og setur regluna efst.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök