Samþjöppun samhengis

e. context compaction

Einnig kallað: context compaction, compaction, samþjöppun

Þegar samhengisglugginn fyllist dregur verkfærið fyrri hluta samtalsins saman í styttri texta og heldur svo áfram.

Samþjöppun samhengis er það þegar forritunarverkfæri eða spjallmenni skiptir eldri hluta samtals eða vinnulotu út fyrir samantekt, svo meira rými verði í samhengisglugganum. Það getur gerst sjálfkrafa þegar glugginn er að fyllast eða verið ræst handvirkt, t.d. með skipuninni /compact í Claude Code.

Samantektin heldur meginatriðunum en smáatriði geta tapast, t.d. nákvæm villuboð eða fyrirmæli sem gefin voru snemma. Það sem verður að lifa af á því heima í samhengisskrá eða skjali sem verkfærið les aftur.

Dæmi úr starfi

Hugbúnaðarverkfræðingur hefur unnið með erindreka í þrjár klukkustundir þegar lotunni er þjappað saman. Hann tekur eftir að erindrekinn man ekki lengur regluna um prófin og setur hana því í samhengisskrána.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök