Týnda miðjan

e. lost in the middle

Einnig kallað: lost in the middle

Mállíkön nýta best upplýsingar í upphafi og lok langs texta. Það sem stendur í miðjunni fer frekar fram hjá þeim.

Týnda miðjan er heiti á niðurstöðu rannsókna á löngu samhengi: þegar mikilvæg upplýsing er í miðjum löngum texta finna mállíkön hana síður en ef hún er í upphafi eða lok. Árangurinn myndar því eins konar U-kúrfu eftir staðsetningu.

Nýrri líkön ráða betur við langan texta, en áhrifin hverfa ekki alveg. Ráðin eru að setja mikilvægustu atriðin fremst eða aftast, stytta samhengið og vísa beint á þann stað sem skiptir máli, t.d. skrá og línu.

Dæmi úr starfi

Skjalavörður sem biður líkan að finna tiltekna dagsetningu í 80 síðna fundargerðasafni lætur það vinna úr einum kafla í einu, því dagsetningin gæti annars týnst í miðjunni.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök