Skýjaerindreki

e. cloud agent

Einnig kallað: cloud agent, cloud agents, skýjaerindrekar

Erindreki sem keyrir á netþjóni í skýinu í stað tölvunnar þinnar og heldur áfram að vinna þótt þú sért ekki við tölvuna.

Skýjaerindreki keyrir í skýjaumhverfi hjá þjónustuveitanda. Hann fær eigin afrit af verkefninu, vinnur í bakgrunni og skilar niðurstöðu, til dæmis breytingatillögu, þegar hann er búinn. Notandinn getur gert annað á meðan.

Þar sem erindrekinn er ekki á tölvu notandans þarf að veita honum aðgang að gögnum og kerfum með öðrum hætti, og hugsa um hvaða upplýsingar fara út fyrir vinnustaðinn.

Dæmi úr starfi

Forritari úthlutar skýjaerindreka verkefni í lok dags og næsta morgun bíður hans breytingatillaga til yfirferðar.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök