Fjölerindrekakerfi

e. multi-agent system

Einnig kallað: multi-agent system, multi-agent

Kerfi þar sem nokkrir erindrekar með ólík hlutverk vinna saman að einu verki.

Fjölerindrekakerfi er kerfi þar sem nokkrir erindrekar vinna saman, hver með sitt hlutverk, verkfæri og fyrirmæli. Algengt er að einn erindreki stýri verkinu, skipti því í hluta og feli undirerindrekum að vinna þá, oft samhliða, og taki svo niðurstöðurnar saman.

Skiptingin getur flýtt fyrir og haldið samhengi hvers erindreka afmörkuðu. Á móti kemur að kerfið notar fleiri tóka, villur geta borist á milli erindreka og erfiðara er að rekja hvar eitthvað fór úrskeiðis.

Dæmi úr starfi

Upplýsingafulltrúi lætur fjölerindrekakerfi undirbúa fréttayfirlit: einn erindreki leitar frétta, annar dregur þær saman og sá þriðji athugar heimildir áður en yfirlitið berst henni.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök