Hugsunarhamur

e. extended thinking

Einnig kallað: extended thinking, adaptive thinking, aðlagandi hugsun, hugsunarham, hugsunarhamurinn

Stilling þar sem líkan hugsar í skrefum áður en það svarar. Svarið verður oft betra en tekur lengri tíma og kostar fleiri tóka.

Hugsunarhamur er stilling þar sem mállíkan vinnur úr verkefninu í nokkrum skrefum áður en það skilar svari. Líkanið skrifar fyrst hugsun sína, sem notandinn sér stundum að hluta, og byggir svarið á henni. Í sumum líkönum ræður líkanið sjálft hve mikið það hugsar eftir því hve flókin spurningin er, og það kallast aðlagandi hugsun.

Hugsunarhamur gagnast best í flóknum verkefnum eins og útreikningum, greiningu og forritun. Hugsunin er reiknuð í tókum og kostar því tíma og peninga, og í einföldum verkefnum bætir hún litlu við.

Dæmi úr starfi

Fjármálastjóri setur líkanið í hugsunarham áður en hann biður það að bera saman þrjár fjárhagsáætlanir og finna hvar forsendurnar stangast á.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök