Keðjuhugsun

e. chain-of-thought prompting

Einnig kallað: chain-of-thought, chain of thought, chain-of-thought prompting

Aðferð þar sem líkanið er beðið að rekja rök sín skref fyrir skref áður en það gefur lokasvar.

Keðjuhugsun, á ensku chain-of-thought, er að fá líkan til að skrifa milliskref í lausn áður en það svarar. Til dæmis má segja: „Farðu í gegnum þetta skref fyrir skref og gefðu svo lokaniðurstöðu.“ Þetta bætir oft árangur í verkefnum sem krefjast margra skrefa, svo sem útreikningum eða rökþrautum.

Skrefin sem líkanið skrifar eru ekki endilega nákvæm lýsing á því hvernig það komst að niðurstöðu, og röng milliskref geta leitt til rangrar niðurstöðu. Röklíkön gera þetta sjálfkrafa.

Dæmi úr starfi

Bókari biður um útreikning á virðisaukaskatti í skrefum og getur þannig séð hvar tala fór af leið.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök