Öryggisatvik er hver sá atburður sem ógnar trúnaði, réttleika eða tiltækileika kerfa eða gagna: innbrot, stolinn aðgangur, gagnagíslataka, vefveiðar sem tókust eða gögn sem send voru á rangan stað. Ekki leiða öll öryggisatvik til tjóns, en hvert þeirra þarf að skrá og meta.
Þegar öryggisatvik varðar persónuupplýsingar getur það verið öryggisbrestur sem að jafnaði er skylt að tilkynna Persónuvernd innan 72 klukkustunda. Því er gott að hafa skráð viðbragð: hver er látinn vita, hvernig tjón er takmarkað og hvernig farið er yfir atvikið eftir á.