Reiknirit er nákvæm lýsing á því hvernig á að leysa tiltekið verkefni í endanlega mörgum skrefum. Uppskrift er hversdagslegt dæmi, en í tölvunarfræði er átt við aðferð sem tölva getur framkvæmt. Sama verkefnið má leysa með mismunandi reikniritum sem eru misfljót eða nota misjafnlega mikið minni.
Í gervigreind er oft talað um reiknirit þegar átt er við kerfi sem metur eða raðar fólki eða hlutum, til dæmis í ráðningum eða við tillögur á vefsíðum. Þá skiptir máli að vita hvaða gögn reikniritið byggir á.